Skratli og Jolli

Skrolla með þér

22.01.2009 22:01:51 / skrolli

Kreppan.....

Eins og allir þið fjölmörgu lesendur síðunnar hafið tekið eftir þá er lítið um færslur undanfarið. Ástæðan fyrir því er sú að kreppan hefur einnig áhrif á Skrollann. Við reyndum að fá lán, afskrifaðar skuldir og sponsora til að styrkja okkur en ekkert hefur gengið.
Eftir langar fundarsetur síðustu helgi hefur verið tekin sú ákvörðun að fara í greiðslustöðvun. Ekki er þar með talið að Skrollinn sé allur heldur er það hugmyndin að leita nýrra leiða til að fjármagna síðuna enn frekar og koma vonandi sterkari með hækkandi sól...

Guð blessi Skrollann

http://a889.ac-images.myspacecdn.com/images01/35/l_75828830799209cdd6d982904d31f178.jpghttp://a88.ac-images.myspacecdn.com/images01/77/l_52b99cf65197a272c1f566dd3d37ca57.jpg

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 14:36:21 / skrolli

Gleðileg Jól



Skrollinn óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum lesendum öllum góðar viðtökur á árinu.




http://dl.glitter-graphics.net/pub/728/728621isjk08so5r.gif

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2008 16:28:39 / skrolli

Kreppa Minn rass!!!!!

Kreppa það er nú eitthvað sem Litli Skrolli þekkir ekki.... Í miðjum mótbyrnum fór hann og splæsti sér loksins á íbúð!! Já það er ekkert gabb í þessu núna eins og með Bananablokkina hérna forðum daga :) Nú er það bara real deal og það er skrifað undir á morgun!!! íbúðin er í Reykási 21, 69 fm og er á fyrstu hæð en samt með svölum :)

Frjáls peninga framlög eru vel þegin á þessum tímamótum þegar Litli Skrollinn er að henda sér í djúpulaugina beint úr hreiðrinu :)

Fólk verður alltaf velkomið í heimsókn....... nema þegar það er óvelkomið

Litli Skrolli sem er bráðum að verða fullorðinn

» 6 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 20:09:50 / skrolli

Tuð... það er stuð

Nóvember fer nú að renna sitt skeið og er það nú bara ágætt. Það er farið að vera þannig að maður fer út í myrkri og þegar maður er búinn í vinnunni þá er myrkur, er það ekki bara ágætt?? Þá er það meira kósý að hafa kerti og svoleiðis :)

En það er eitt sem mér finnst svona mest áberandi núna (fyrir utan kreppuna auðvitað). Það er jóladótið. Það eru komnar Egils Malt og Appelsín auglýsingar, jólabjórinn er kominn, Vodafone er komið með jólaauglýsingar (sem eru mjög fyndnar), fólk farið að hengja upp jólaljós og svo í dag þá ætlaði ég að hlusta á Létt Bylgjuna því ég nennti ekki að hlusta á Krepputal og þá er byrjað að spila jólalög þar!!! Þegar ég var ungur þá hélt ég að það væri "bannað" að spila jólalög þangað til 1.des. Eða það sagði pabbi alla vega;) Svo var ég að tala um þetta við krakkana og þá sögðu sum að það væri búið að skreyta jólatréð!!!!8|  Í minni sveit var nú bara skreytt jólatré á Þollláksmessu undir jólakveðjunum á RÚV.
Sko jólaseríur, ok, lýsa upp skammdegið, en jólalög, jólaskraut og jóla jóla jóla finnst mér of mikið. Ég er á þeirri skoðun að ef við förum að lengja þann tíma sem jólaskrautið og jóladæmið allt saman þá missir þetta marks og verður ekkert jafn skemmtilegt þegar jólin loksins ganga í garð!!!! Hvað er spennandi að hafa jólatré ef það er búið að vera uppi í 5 vikur??? Jólaskrautið á að vera tilbreyting í smá tíma en ekki margra mánaða breyting.

Ég veit ekki með ykkur en kannski er ég bara svona hrikalega gamaldags og vil halda í mínar hefðir og að þetta verða bara þessar nýju hefðir. En förum við ekki þá bara að skreyta fyrir páskana mánuði fyrr og það endar með því að 4 mánuði ársins er annað hvort jóla- eða páskaskraut í gangi???

Nei ég bara spyr

Einn sem er að farast úr kreppu- skammdegisþunglynd ( nei nei ég er alveg ferskur)

http://dixieugadawg.files.wordpress.com/2007/12/christmas-vacation.jpg
Hver fer ekki í jólaskap við það að horfa á þessa mynd


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.11.2008 19:07:04 / skrolli

Í viðjum vanans

Jæja núna þegar maður stendur á tímamótum í lífinu þá er ekki frá því að maður hafi sest niður og íhugað sjálfan sig aðeins og ekki var það góð niðurstaða 8| Same shit, different day!!! Ég held líka að það eru soldið margir sem eru í sömu sporum og ég..... Maður keyrir alltaf sömuleið í og úr vinnunni. Maður vinnur við það sama alla dag (nema kannski á sumrin en þá tekur við önnur vinna þar sem ekki er mikið um fjölbreyttni). Svo kemur maður heim, fer kannski í ræktina og svo er það bara sjónvarpið eða facebook!!! Svo þegar það kemur helgi og maður ætlar nú aldeilis að sletta úr klaufunum og ákveður þá að detta á djammið, bara af því bara!!! Vaknar svo á sunnudegi þunnur og í smá þunglyndi yfir því hversu litlaus vikan hefur verið :( Er þetta eitthvað sem á að vera svona og verður svona þangað til maður verður 80 ára???

Ég neita að trúa því... Því langar mig að breyta eitthvað til. Gera eitthvað öðruvísi, eitthvað annað en maður gerir en ég veit bara ekki hvað það er... Hvað er hægt að gera sem maður gerir ekki dagsdaglega, hvaða fjölbreytni er hægt að hafa í þessu hjá manni?? Eruð þið með einhverjar hugmyndir eða á maður bara að "face-a" það að svona er þetta bara??

Einn nett þunglyndur - Skrolli Jr.

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 13:47:06 / skrolli

Niðurstaða rannsóknar á bankakreppu landsins


Hér sést hvernig á því stóð að bankarnir fóru á hausinn



Skrolli SR

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.11.2008 16:27:51 / skrolli

Afmælisbarn dagsins

Afmælisbarn dagsins er enginn annar en....... Óskar Atli Rúnarsson.
Drengurinn er 27 ára í dag. Hann hefur alltaf talist bera aldurinn vel og lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en 19!!!

Blóm og kransar afþakkaðir en gjafir að verðmæti 7500 kr og dýrari vel þegnar.

Óskar ætlar að eyða deginum með fjölskyldu og vinum.

Til hamingju með daginn

http://us10.pixagogo.com/S5yfZ0qxqd1GSIWrKbVOG-namLGmHtyGr9ewZbq1EkYa2YBAoLkUnOaNFOlKuusXtDkXmBnBfSx6hENygrRLyFFLvY560F7Why!YpfrB6h-zM_/DSC02028.JPG


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 17:42:42 / skrolli

Minnstur í heimi

Þá er það hin geysiskemmtilegi liður, Í heimi. Nú verður fjallað um minnsta mann í heim.

Sá sem er þess heiðurs aðnjótandi heitir því skemmtilega nafni He Pingping. PingPing er fæddur í Kína í júlí 1988 og er því nýorðinn 20. Hann er einungis 73 cm á hæð (eða rúmum 70 cm lægri en Bjartmar og Atli).

Faðir He Pingping, He Yun, sagði að við fæðingu hafi Pingping verið jafn stór og lófi. Hann stækkaði hæga en önnur börn og er það vegna beina sjúkdóms.
Pingping stjórnar sjónvarpsþáttum í Tokyo og vakti að heimsathygli þegar Pingping og hæsti maður í heimi hittust en þeir eru einmitt báðir frá innri Mongólíu.

http://subnerd.com/wp-content/uploads/2007/07/smalltallap_450x340.jpg     http://en.ce.cn/Life/trend/200704/05/W020070405528857945490.jpg
Stærsti og minnsti maður í heimi


Stærðin skiptir greinilega máli í þessu!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 22:39:42 / skrolli

Úrslit

Þá er komið að úrslitastundu!!! Eftir rosalegann endasprett þá var það skáld sem á framtíðina fyrir sér í bransanum. Það hefur verið þekkt hingað til fyrir að fara aðrar leiðir og ótroðnar slóðir. Skáldið segir sína meiningu og er ekkert að skafa utan af því.

Skáldið er enginn annar en bjammi.com.


                                            Rigningin dynur og allt er blautt
                                                fer þessu ekki senn að ljúka
                                            krónan hrynur og barnið er snautt
                                                   Ráðherra þarf að kúka

http://jollinn.blogcentral.is/AlbumImage.ashx?id=527041
Bjammi.com er lengs til vinstri á myndinni, klæddur eins og skáld

Til hamingju bjammi.com


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.10.2008 17:00:06 / skrolli

Engin kreppa í þessu!!!

Ég er örugglega ekki einn um það að vera orðinn leiður á að hlusta/horfa á fréttirnar. Það er alltaf það sama.... við vitum alveg að það sé kreppa!!! Nú vil ég ekki heyra meira um þetta í fréttum nema það séu einhverjar lausnir á þessari kreppu. Nenni ekki að hlusta á hvað lífið er erfitt og ömurlegt hérna.

En í dag heyrði ég einhvern veðurfræðing segja að veturinn væri kominn og haustið liðið, þá er ekki seinna vænna en að kjósa Haust vísu Skrolla. Þær vísur sem komust í úrslit eru:

bjammi.com
assúm
234248thfbv
gillinn
Atli Sveinn 2

Nú er það undir ykkur lesendur góðir að kjósa hver er ykkar uppáhalds vísa hér hægra megin og vil ég benda fólki á það að leyfilegt er að kjósa oftar en einu sinni....

Skrollinn-Íslandi allt

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 21:51:07 / skrolli

Kaupum íslenskt!!!!

Er ekki alltaf verið að hvetja Íslendinga til þess að efla framleiðslu og auka útflutning í kreppunni.

mynd

Ætluðu þeir ekki bara að efla gjaldeyrisvaraforðann?
Maður spyr sig.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 10:19:24 / skrolli

Little Britain........

Gefum skít í þessa helvítis Breta........Hvað eru þeir að derra sig núna. Vilja þeir kannski tapa 3 stríðinu við okkur (við unnum 2 þorskastríð hehe). Held að Gordon Brown ætti nú bara að slaka á annars þjóðnýtum við West Ham og sendum þá í Seðlabankadeildina
næsta sumar.





Við tökum þá bara á móti Rússum.........

Hættum að horfa á enska boltann. (Nema auðvitað Liverpool) og mitt uppáhaldslið nú er

Zenit Petersburg..........

Litla Bretland:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.09.2008 13:06:33 / skrolli

Haust vísa Skrolla

Það er rigning í dag!! Djöfull kemur það á óvart.... Ekki vissi ég að það gæti rignt svona mikið í einu, það er búið að rigna nánast síðan við komum heim frá Tenerife (nánast). En ég verð samt að segja að ég er alveg til í að hafa þetta svona, Rigning á haustin, snjór á veturna og svo gott vor og sumar!!! Það eru þá einhverjar árstíðir en ekki bara allt svipað. Soldið töff að segja að það sé að koma rigningar tímabil í ágúst... Monsún rigning.

En þá er komið að Haust vísunni. Eins og venjulega er öllum velkomið að taka þátt og er öllum heimilt að senda inn eins margar vísur og maður vill, einnig er leyfilegt að senda inn vísur undir dulnefni.


                                              Rigningin dynur og allt er blautt,                                       
                                                fer þessu ekki senn að ljúka?

Nú er bara að leggja höfuðið í bleyti, láta hugann reika og finna góðan seinni part, hver vill ekki verða Haustskáld Skrolla??

P.s Skrolli ber ekki ábyrgð á dónaskap eða öðru sem hugsanlega kemur fram í vísunum. Hver vísa er á ábyrgð höfundar og að virðingu við listamanninn vill Skrolli ekki breyta eða eyða út vísum sem ekki eru persónulegar árásir á aðra einstakinga.


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 23:07:49 / skrolli

Kompás

Já góðan daginn góðir hálsar.

Eflaust hafa flestir ef ekki alllir landsmenn séð síðasta þátt af Kompás. Athyglisverður þáttur með meiru. Eftir að hafa horft á þáttinn þá var mér brugðið. Vöðvabúnt úr World Class mætti þarna á fokdýra jeppanum sínum og fór að rökræða við greyið úr sundlaug Hafnafjarðar sem einni mætti á fokdýrum Benz. (Eru þetta svona vel launaðar vinnur?)

Eftir að hafa horft á uncut version á Vísi þá horfði þetta aðeins öðruvísi við mér. Greinilegt er að sundlaugarvörðurinn á að baki halann allan af svikum og prettum. Eflaust á hann því mikið af óvinum sem vilja nálgast peninginn sinn hjá honum. En hvað með vöðvabúntið?. Hann virðist bara ætla að rukka sundlaugarvörðinn um 5 milljónir, vegna þess að hann sagði eitthvað í útvarpsþætti og af þvi að hann héldi hann hafa kveikt í bílnum sínum. Ég gat ekki betur séð en að hann hefði fengið flunkunýjan jeppa frá tryggingunum og varla er sjálfsábyrgðin 5 milljónir. Þannig að þar var um handrukkun að ræða þar sem að engin innistæða virtist vera fyrir rukkuninni annað en að hann væri búinn að svíkja þennan og annan manninn.

En eins og ég segi þá er sundlaugavörðurinn greinilega ekki saklaus drengur. Hvernig í ósköpunum og þá er ég bara að gefa mér að hann sé í mesta lagi 30-33 ára miðað við hvernig hann lítur út, hvernig í ósköpunum getur þessi maður eignast fullt af raðhúsum. keypt fullt af skemmtistöðum, átt glæsikerrur á lager í Vogunum sem síðan brenna upp til agna. Hvar fær maður svona góð laun???? maður spyr sig. Hann er kallaður athafnamaður......my ass. Hvað þíðir það. Svikahrappur og öreigi. Held nú ekki.

Nú velti ég mér fyrir hverjir eru athafnamenn. Friðrik Weisshappel, Fjölnir Þorgeirsson,  Bolli í 17 og svona kónar sem kallaðir eru athafnamenn í séð og heyrt þar sem að þeir geta ekki tollað í einhverju einu fagi.

Get ég kallað mig athafnamann? Nokkrum sinnum hélt ég tombólu þegar ég var yngri, Var í unglingavinnunni í nokkur ár, Vann í gróðrarstöð og SÁ UM bátaleigu í heilt sumar. Var annar af umsjónamönnum gámalosunar hjá BAUGI í einhver misseri, Hef þjálfað íþróttir og starfa nú sem sölu og innkaupamaður. Fjölbreytt er það og ef ég kæmi í séð og heyrt þá væri nú auðvelt að kalla mig athafnamann eða hvað?

Allavega þá finnst mér það í góðu lagi þó svo að annar aðilinn í þessum þætti hafi ekkert vitað um myndavélarnar að þessi þáttur hafi farið svona fram. Vöðvabúntið sýndi sínar réttu hliðar og var ekkert að fela það að hann hefur gert svona áður. Sundlaugarvörðurinn sýndi það einnig að hann er ekki saklaus og ég vona bara að Kompás taki þann mann fyrir í einhverjum þætti í náinni framtíð og fjalli um hans mál.

Allavega vorkenndi ég honum þegar hann var laminn þar sem að augljóst var að hann var skíthræddur og fann mikið til enda ógeðslegt að sjá þetta vöðvabúnt vera að traðka á hausnum á honum á milli þess að kýla hann í magann sem by the way er ekki gott.

Ég hef lent í þessu sjálfur af eigin raun erlendis að vera kýldur og sparkað i síðu og höfuð og ég get alveg fullyrt það að hræddari hef ég ekki verið á minni stuttu lífsleið. Vona ég að það hendi mig ekki aftur og í raun ekki nokkurn mann nema þó með örfáum undantekningum (og á ég þá við einstaklinga sem brjóta gróflega gegn börnum, konum og öðru fólki).

SVONA ER ÍSLAND Í DAG.

p.s. Ég borga sko ekki neinar helvítis 5 milljónir fyrir að skrifa þetta.

kv Skrolli eldri 


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 15:30:47 / skrolli

Champions league fantasy......Skrolladeild

Sælt veri fólkið. Já ég hvet alla til að skoða krepputalið hans Jolla hér að neðan en samt að gera það eftir að búið er að stofna lið í fantasy deild UEFA Champions league.

Farið inn á http://en.uclfantasy.uefa.com/ og búið ykkur til lið þar. Endilega joinið svo Skrolladeildina en til þess farið þið í Leagues og sláið inn tölurnar hér að neðan.
111453-22857

Þetta er nákvæmlega eins og enska fantasy deildin og er ekki flókið. En það verður að hafa hraðar hendur því 1. umferð er á eftir.

kveðja Skrollinn

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 40145
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1178 dögum
Eldri Skrolli verður 27 ára
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1167 dögum
Litli Skrolli verður 25 ára
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Dagsetning
28. janúar 2012
Klukkan
Uppskriftahorn Kokksona
Tippkeppnin